![]() |
|
|
|||||
Komiði sæl þennan ágæta föstudag!2009-07-03
Komiði sæl þennan ágæta föstudag! Ég er að reyna að gera mitt besta að vera í sumarfríi, sef út og einbeiti mér að almennu chilli. Í gær fór ég nú út og hjólaði niðrí bæ. Ég valdi að sjálfsögðu heitasta daginn fyrir þessa bæjarferð mína. Það var bærilegt að hjóla en um leið og ég var búin að parkera hjólinu þá byrjaði ballið. Ég rölti niður Købmagergade og stefndi á búð sem mig langaði að skoða. Jii minn eini hitinn sko! Þegar ég kom í búðina var ég að kafna! Svitnaði brjálað mikið og ráfaði um búðina í einhverju hitamóki hehe. Náði nú samt að kaupa 2 boli á útsölunum ;) Þegar heim var komið fór ég á tagterrasseuna (þakveröndina) mína og sólaði mig í dágóðan tíma í rugl hita...já það er sko ekki auðvelt að vera í sumarfríi í úglöndum tíhí :) Í dag er akkúrat vika í brottför okkar til Færeyja og Íslands. Dallurinn siglir frá Danmörku á laugardaginn en hún frænka mín og maðurinn hennar í Vodskov, Árný og Jørn, ætla að vera svo indæl að taka á móti okkur á föstudeginum og leyfa okkur að gista hjá þeim. Síðan leggjum við af stað frá þeim á laugardeginum - mjög gott plan. Í Færeyjum ætlum við að keyra um og reyna að skoða sem flest á þessum 3 dögum sem við verðum þarna. Hér getiði séð veðrið í Færeyjum gegnum vefmyndavélar sem er búið að koma fyrir hér og þar um eyjarnar. Krossa fingur að það verði þuuuuurrt! :) Á eftir ætlum við að kíkja í svona útivistarbúð og versla okkur túristamat hehe. Þetta er svona þurrmatur í poka sem við getum eldað á eldunargræjunni okkar. Hægt er að kaupa morgunmat, hádegismat, kvöldmat og já jafnvel eftirrétt! mmmmm.... :) Það er meira að segja hægt að kaupa rauðvínsduft sem maður hellir í vatn og voila! rauðvín versagú :) eeen ég held við sleppum því að kaupa það hehe. Síðan vorum við að spá í að kíkja í nokkrar mótorhjólabúðir á laugardaginn og kíkja á buxur og hjálm fyrir Simma. Ein búðin er í Malmö þannig við tökum rúnt þangað yfir sundið. Jájá nóg að gerast, við erum allavega orðin rosa spennt að koma heim á klakann og sjá ykkar fögru fés :) Góða helgi! Kveðja, Höfundur: Sía |
|
|
|||||
![]() |
![]() |
|
|
||||
|
|
|
|
|
||||
|
|
![]() |
|
|||||
|
|
![]() |
|
|||||
|
|
![]() |
|
|||||
|
|
![]() |
|
|||||
|
|
![]() |
|
|||||
|
|
|
||||||
|
|
|
||||||
|
|
|
|
|
|
|
|
|